Íslenski boltinn

Kristján Hauksson til Vals

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristján er hér í baráttu við Helga Sigurðsson, verðandi félaga sinn hjá Val.
Kristján er hér í baráttu við Helga Sigurðsson, verðandi félaga sinn hjá Val. Mynd/Anton

Kristján Hauksson mun vera á leið til Íslandsmeistara Vals frá öðru Reykjavíkurfélagi, Fram.

Þetta kemur fram á fótbolti.net í dag.

Kristján er 21 árs gamall og þykir einn af efnilegri varnarmönnum Landsbankadeildarinnar. Hann kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2005 er hann lék sextán leiki með Fram í Landsbankadeildinni.

Ári síðar lék hann níu leiki með Fram í 1. deildinni og svo þrettán í úrvalsdeildinni í ár.

Samtals á hann að baki 50 meistaraflokksleiki með Fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×