Íslenski boltinn

Rúnar yfirmaður knattspyrnumála hjá KR

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rúnar lék kveðjuleik sinn gegn Fylki nú í síðasta mánuði.
Rúnar lék kveðjuleik sinn gegn Fylki nú í síðasta mánuði. Mynd/Valli

Eins og Vísir greindi frá í viku hefur Rúnar Kristinsson verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá KR.

Eins og segir í tilkynningu frá KR hefur Rúnar yfirumsjón með öllu faglegu starfi knattspyrnudeildar KR.

Þetta er ný staða hjá íslensku knattspyrnufélagi en þekkist vel erlendis.

Hann mun bera ábyrgð á ráðningu allra þjálfara og leikmanna í samráði við þjálfara og stjórn. Jafnframt mun hann hafa umsjón með sérþjálfun einstakra leikmanna meistaraflokks. Þá mun hann einnig stýra faglegu starfi akademíu KR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×