Ragnar: Ljótur en sætur sigur Elvar Geir Magnússon skrifar 12. september 2007 21:13 Mynd/Heimasíða Gautaborgar.
Ragnar Sigurðsson, varnarmaður íslenska landsliðsins, segir að sigurinn hafi kannski ekki verið fallegur en þó mjög sætur. „Ég held að það sé hægt að segja að þetta hafi verið ljótur sigur," sagði Ragnar við Vísi eftir leikinn gegn Norður-Írlandi. „Við féllum of mikið til baka. Svona vill oft gerast þegar lið komast yfir gegn liði sem er talið sterkara. Menn ætluðu sér ekki að gera þetta en ósjálfrátt þá féllum við til baka," sagði Ragnar. „Jöfnunarmarkið hjá þeim lá í loftinu í seinni hálfleiknum. Við töluðum síðan ekki nægilega vel saman og vorum ekki með á hreinu hver ætti að dekka sóknarmann þeirra og hann fékk víti." Sigurmark Íslands kom á 89. mínútu en fram að því var liðið ekki mjög líklegt til að skora. „Þeir héldu áfram að pressa okkur eftir markið og þá náðum við skyndisóknum. Svo náðum við að skora þetta mark og það var frábær tilfinning að sjá boltann inni," sagði Ragnar sem leikur með Gautaborg í Svíþjóð. „Fyrir Spánarleikinn töluðum við saman og vorum ákveðnir í að sýna þjóðinni að við værum betri en við höfðum sýnt. Þessi andi hefur skilað okkur fjórum góðum stigum úr þessum tveimur heimaleikjum." Ragnar var aðeins að spila sinn þriðja landsleik en það var ekki að sjá á honum. Hann hefur komið virkilega sterkur inn í liðið þrátt fyrir ungan aldur. „Í heildina litið er ég mjög sáttur við mína frammistöðu í kvöld. Ég lét samt klobba mig þarna einu sinni og er fúll yfir því en annars glaður," sagði Ragnar.
Mest lesið Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Dagur hengdi hrakspá handboltasérfræðings upp á króatíska hótelinu Handbolti Svona er staðan: Ekkert svigrúm hjá strákunum okkar Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Erfitt fyrir Íslendinga að komast að: „Það er bara uppselt“ Handbolti „Góðu hliðarnar eru helvíti góðar“ Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti „Einn besti leikur sem maður hefur séð svakalega lengi“ Handbolti „Gætið ykkar á Óðni en ekki bara honum“ Handbolti Danir komnir í undanúrslit en Þjóðverjar þurfa stig gegn Frökkum Handbolti Fleiri fréttir Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Sjá meira