Karl og Camilla í hár saman vegna minningarathafnar um Díönu 28. ágúst 2007 10:39 Hjónin voru alls ekki sammála um hvort Camilla ætti að vera viðstödd minningarathöfn um Díönu prinsessu MYND/Getty
Allt fram á sunnudaginn síðastliðinn var ráðgert að Camilla Parker Bowles, eiginkona Karls Bretaprins, yrði viðstödd minningarathöfn til að heiðra minningu Díönu prinsessu. En tíu ár verða liðin frá dauða hennar á föstudaginn næstkomandi. Karl hafði sannfært Camillu um að sem eiginkona verðandi konungs og stjúpmóðir barna hans væri viðeigandi að hún yrði viðstödd. Camilla hafði þó alltaf sínar efasemdir og vildi alls ekki skyggja á minningu prinsessunnar. Þegar vinkonur Díönu gagnrýndu hana fyrir að ætla að mæta fór allt í upplausn. Náin vinkona Camillu sagði hana hafa verið gráti næst og að henni hafi verið mjög mikið niðri fyrir. Karl stóð þó fast á sínu og vildi alls engu breyta um fyrirætlanirnar enda myndi það draga að sér neikvæða athygli. Elísabet Englandsdrottning tók þá til sinna ráða og ákvað eftir að hafa ráðfært sig við helsta ráðgjafa sinn, Sir Robin Javrin, að styðja ákvörðun Camillu. William prins sem staddur var í höllinni um helgina tók einnig afstöðu með stjúpmóður sinni og var því ákveðið að hún yrði ekki viðstödd og tilkynning þess efnis gefin út á sunnudag. Karl lét Camillu vita að ekki væri aftur snúið og að hún yrði að standa við ákvörðun sína og sitja heima. Þeir William og Harry eru sagðir leiðir yfir þeirri athygli sem málið hefur fengið enda vilja þeir að minning móður þeirra verði í hávegum höfð í athöfninni og eins þau afrek sem hún vann.
Mest lesið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Lífið Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Tónlist Nýr rafbíll BMW afhjúpaður í Hörpu Lífið samstarf Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bansi í Feneyjum Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bansi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Sjá meira