Lífið

Rannsókn á fangelsisdvöl Parisar Hilton

MYND/AFP

Lögreglustjórinn í Los Angeles ætlar að hefja rannsókn á því hvort Paris Hilton hafi hlotið sérstaka meðferð á meðan á fangelsisdvöl hennar stóð. Rannsóknin mun meðal annars miða að því að kanna fullyrðingar um það að Paris hafi fengið að nota farsíma á meðan aðrir fangar þurfi að notast við peningasíma. Eins mun lögreglustjórinn kanna hvort Paris hafi fengið nýjan fangabúning í staðinn fyrir notaðan líkt og aðrir fangar fá.

Hilton var dæmd í 45 daga fangelsi fyrir umferðarlagabrot. Hún sat inni í Century Regional Detention Centre í Lynwood í 23 daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.