Ekki verði farið í gegnum Teigskóg 26. janúar 2007 11:16
Helstu náttúrverndarsamtök landsins hafa sent frá sér árskorun til Alþingis þar sem þingið er hvatt til þess að sjá til þess að Vestfjarðarvegi verði valin ný veglína með göngum undir Hjallaháls og Gufudalsháls í stað þess að fara í gegnum Teigskóg eins og umhverfisráðherra hafi heimilað. Í tilkynningu frá Fuglavernd, Landvernd, Náttúruverndarsamtökum Íslands og Náttúruvaktinni segir að við blasi að slík göng séu besti kosturinn með tilliti til náttúrufars, umferðaröryggis, styttingar leiðar, lágmörkunar kostnaðar og hámörkunar arðsemi. Sú leið hafi hins vegar ekki verið skoðuð sem valkostur í mati á umhverfisáhrifum. Með göngunum undir Hjallaháls og Gufudalsháls myndi umferðaröryggi aukast á Vestfjarðavegi og þá væri komið í veg fyrir skemmdir á Teigsskógi, að tveim gjöfulum arnarhreiðrum verði ógnað auk þess sem leirur Djúpafjarðar sem eru mikilvægar fyrir vaðfugla yrðu verndaðar. Bent er á í áskoruninni að Teigsskógur sé víðáttumesti náttúrulegi birkiskógurinn á Vestfjörðum og með þeim stærri á landsvísu. Hann sé á náttúruminjaskrá og nær væri að huga að því að gera verndun hans hærra undir höfði, t.d. með stofnun friðlands og gerð fræðslustíga fremur en að rýra hann með vegagerð. Vestfirðir séu í mikilli sókn sem ferðamanna- og útivistarsvæði og munu því bættar samgöngur til Vestfjarða með gangagerð nýtast ekki einvörðungu Vestfirðingum heldur landsmönnum öllum.
Mest lesið Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Innlent Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Innlent Halldór Blöndal er látinn Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Fleiri fréttir Takmarka fjölda nemenda utan EES Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Mikill meirihluti ánægður með að Ísland taki ekki þátt Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Pollróleg þó starfsáætlun þingsins hafi verið felld úr gildi Telja brotið gegn réttindum barna og íhuga málaferli Ragnhildur nýr framkvæmdastjóri Píeta samtakanna Norðurþing og Heidelberg undirrita viljayfirlýsingu vegna uppbyggingar á Bakka Skoða málsókn vegna látinna sona og hagstæðustu jólainnkaupin Vestmannaeyjastrengir 4 og 5 teknir í rekstur Grunaður um manndráp á Kársnesi Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Stofnunum fækkar um tuttugu Ísland tekur höndum saman með Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Skilaboð Vestfirðings til stjórnvalda ekki útvarpshæf eftir 50 milljóna króna tjón Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Óska eftir myndefni frá Kársnesi vegna mannslátsins „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni „Grafalvarlegt“ að Ísland fari gegn vísindalegri ráðgjöf Laxar struku úr landeldi í Eyjum Starfsáætlun þingsins kippt úr sambandi Faldi töflurnar í nammipoka Ekið á gangandi vegfaranda á Sæbraut Makríllinn enn hitamál og áfall í fiskeldi í Tálknafirði Hjálmar gefur ekki kost á sér Eyjamenn ósáttir við nýbirta samgönguáætlun Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Gæsluvarðhald vegna andláts í Kópavogi framlengt Sjá meira