Munum leita réttar okkar ef Guðjón biðst ekki afsökunar 7. júlí 2007 11:00 Einar Orri Einarsson fagnar marki Keflvíkinga sem Hallgrímur Jónasson skoraði. Skömmu síðar fékk hann að líta rauða spjaldið. MYND/Eiríkur
Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, fullyrti það í Kastljósi Sjónvarpsins í fyrrakvöld að Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, hafi sent varamann inn á til þess eins að reyna að limlesta Bjarna Guðjónsson, leikmann ÍA. Einari Orra Einarssyni var skipt inn á í liði Keflavíkur skömmu eftir að Bjarni skoraði síðar mark sitt í leiknum. Markið hefur verið umdeilt, svo vægt sé til orða tekið, en Keflvíkingar vilja meina að Bjarni hafi hagað sér óheiðarlega og óíþróttamannslega. Einar Orri tæklaði Bjarna illa skömmu eftir að hann kom inn á og fékk fyrir vikið að líta rauða spjaldið. „Ef Guðjón dregur ekki þessi orð til baka munum við leita réttar okkar. Það er ekkert öðruvísi,“ sagði Einar Helgi Aðalbjörnsson, faðir Einars Orra, í samtali við Fréttablaðið í gær. „Ég hef sagt Gísla (Gíslasyni, formanni rekstrarstjórnar KÍA) þetta. Guðjón heldur því fram að drengurinn hafi verið sendur inn á völlinn sem einhver hryðjuverkamaður.“ Spurður hvort hann telji að Einar Orri hafi viljandi ætlað að meiða Bjarna segir Einar Helgi að hann hafi spurt son sinn að því sama. „Hann sagði við mig að ef hann hafi ætlað að gera þetta, hefði hann tæklað löppina sem Bjarni stóð í. Það gerði hann ekki. En þetta var hárréttur dómur og ekki hægt að mótmæla rauða spjaldinu sem Einar Orri fékk.“ Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur sagði svo í samtali við 14-2 í Sjónvarpinu að honum væri flökurt eftir að hafa hlustað á Guðjón í Kastljósinu. „Þetta er háalvarleg ásökun og efni í meiðyrðamál. Ég krefst þess að Guðjón biðjist afsökunar á þessum ummælum. Hann vegur að mínum heiðri sem knattspyrnuþjálfara og jafnvel sem manneskju. Ég geri ekki svona hluti.“ Um atvikið sagði Guðjón orðrétt í Kastljósi: „Markið er eitt út af fyrir sig. [...] Það er sendur maður inn á til þess eins að limlesta leikmann. Ég fullyrði það.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Handbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti Fleiri fréttir Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sjá meira