Guðmundur Benediktsson framlengir samning við Val 22. október 2007 21:35 Gummi Ben verður áfram hjá Val. „
Á meðan maður hefur ennþá gaman af því að spila fótbolta og hefur fína heilsu þá er engin ástæða til að hætta," segir Guðmundur Benediktsson sem hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara Vals um eitt ár. Guðmundur er 33 ára gamall. Hann spilaði gríðarlega vel í sumar og voru margir Valsmenn hræddir um að nú myndi hann leggja skóna á hilluna eftir að titlinum var hampað. Guðmundur segist þó ekki hafa íhugað alvarlega að hætta núna. „Ég velti því aðeins fyrir mér en eins og ég segi þá dröslast maður í þessu á meðan maður gerir eitthvað gagn og hefur gaman af." Miðað við spilamennsku Guðmundar í sumar má ætla að önnur lið deildarinnar hafi viljað klæða hann úr rauðu treyjunni og í einhverja aðra. "Það voru einhverjar þreifingar en ekkert alvarlegt. Það kitlaði líka mest að spila áfram með góðu liði sem ætlar sér að vera gott áfram," segir Guðmundur og nefnir einnig að spennandi verði að leika á nýja Vodafonevellinum næsta sumar. "Það verður gaman að taka þátt í því ævintýri," bætir hann við. „Ég held það sé bara raunhæft að taka eitt ár í einu, maður veit heldur aldrei hvernig líkaminn verður og því vil ég bara taka eitt ár í einu," segir Guðmundur þegar hann er spurður að því hvort ekki hafi komið til greina að semja til lengri tíma en eins árs. Guðmundur hefur lent í erfiðum meiðslum á ferli sínum sem knattspyrnumaður en hefur verið nokkuð heppinn síðan hann gekk í Val. „Já ég held ég hafi bara misst úr einn leik í deild og þá var ég í leikbanni. Ég hef því verið blessunarlega laus við meiðsl síðustu ár, sjö, níu, þrettán," segir Guðmundur kampakátur að lokum.
Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Körfubolti Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti Fleiri fréttir „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Natasha með slitið krossband Kári reynir að hjálpa HK upp um deild „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Tómas Bent seldur til Skotlands Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: FH - Víkingur 2-2 | Forza ragazzi! Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Selvén aftur í Vestra „Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ KR sækir Arnar Frey af bekknum hjá HK Sjá meira