Ég ber engan kala til Guðmundar Mete 11. júlí 2007 08:15 Hjörtur Hjartarson
Sextán liða úrslitum VISA-bikars karla lýkur í kvöld með þremur leikjum. Þór tekur á móti Fylki á Akureyri, Breiðablik og HK mætast í Kópavogsslag og svo tekur 1. deildarlið Þróttar á móti Keflavík. Í þeirri viðureign mætast á ný Hjörtur Hjartarson, leikmaður Þróttar, og Guðmundur Mete, leikmaður Keflavíkur. Þeir voru í aðalhlutverki í máli síðasta sumars. Þá lenti þeim saman í leik ÍA og Keflavíkur og Hjörtur játaði eftir leikinn að hafa kallað Guðmund Tyrkjadjöful. Hann sagði það þó ekki hafa verið sagt af ástæðulausu enda hafi Guðmundur látið svívirðingarnar rigna yfir hann og meðal annars hótað að drepa sig. Málið fór fyrir aganefnd KSÍ og fékk Hjörtur tveggja leikja bann en Guðmundur eins leiks bann. „Ég hef hvorki heyrt né séð í Guðmundi eftir þennan leik á Akranesi fyrir ári síðan. Ég heyrði aldrei frá honum og fékk aldrei neina afsökunarbeiðni frá honum en hann verður að eiga það við sjálfan sig," sagði Hjörtur sem kom meðal annars fram í Kastljósinu, sagði sínu sögu, játaði brot sitt og baðst afsökunar. Guðmundur og Keflvíkingar neituðu að tjá sig um málið. „Eflaust munu menn fylgjast með okkur en í ljósi atburða síðustu viku þá muni fólk almennt fylgjast með viðbrögðum Keflavíkurliðsins í heild sinni. Hvernig þeir vinna úr þessu máli á Akranesi," sagði Hjörtur en hvernig leggst það í hann að mæta Guðmundi á ný? „Ég hef ekkert spáð í það sérstaklega en ég get ekki neitað því að ég hló létt þegar ég sá að við drógumst gegn Keflavík. Það er hvorki kvíði né beygur í mér að mæta honum. Þessi leikur verður ekkert öðruvísi fyrir mér en aðrir enda ber ég engan kala til Guðmundar og hef ýtt þessu máli út af borðinu hjá mér. Ég skulda Guðmundi ekki neitt og hann skuldar mér ekki neitt þó svo hann hafi aldrei séð ástæðu til þess að biðja mig afsökunar. Það væri samt almennilegt af honum ef hann útskýrði einhvern tímann sína hlið í málinu," sagði Þróttarinn Hjörtur Hjartarson. Ekki náðist í Guðmund Mete í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira