Íslenski boltinn

Blikar í undanúrslit

Þórarinn Kristjánsson og Arnar Grétarsson í baráttu á vellinum.
Þórarinn Kristjánsson og Arnar Grétarsson í baráttu á vellinum. MYND/VALLI

Breiðablik er komið í undanúrslit VISA-bikars karla í fótbolta eftir öruggan sigur á Keflavík, 3-1, á Kópavogsvelli. Staðan var markalaus í hálfleik en Blikar voru miklu sterkari í síðari hálfleik.

Árni Kristinn Gunnarsson kom Blikum yfir á 62. mínútu, Prince Rajcomar bætti öðru marki við á 74. mínútu og Keflvíkingurinn Baldur Sigurðsson varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 80. mínútu. Pétur Heiðar Kristjánsson skoraði eina mark Keflavíkinga á 85. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×