Fékk ekki að kveðja eiginmann sinn eftir að honum var vísað úr landi 13. september 2007 16:40 Frá Leifsstöð. Ruslan var haldið lokuðu í öryggisherbergi og fékk ekki að kveðja konu sína. MYND/RR
Eiginkona rússnesks manns sem búsettur hefur verið hér á landi undanfarin tvö ár óttast um afdrif hans eftir að hann var rekinn úr landi í gær. Maðurinn, sem er frá Tjetjeníu, var sendur til baka til Rússlands og óttast kona hans að þar verði hann settur í fangelsi vegna uppruna síns. Lögreglan meinaði henni að kveðja hann á Leifsstöð í gær. „Ég vildi kveðja hann í gær en þeir sögðu mér að það væri ekki hægt," sagði Julia Zacharova í samtali við Vísi. Julia er eiginkona Ruslan Bogaeira sem vísað var úr landi í gær. Að sögn Juliu fékk hún engar upplýsingar um það hvers vegna Ruslan var vísað úr landi. Hann hefur verið búsettur hér á landi í tvö ár og var meðal annars kominn með kennitölu og vinnu. Í gær var honum hins vegar vísað úr landi og hann sendur til Rússlands. Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra var manninum vísað úr landi að beiðni Útlendingastofnunar. Stofnunin kvað upp úrskurð um brottvísun í desember árið 2005. Ruslan hafi hins vegar fengið bráðarbirgðadvalarleyfi til 13. október næstkomandi af því gefnu að ekki komi til brottvísunar fyrir þann tíma. Ekki lágu fyrir upplýsingar afhverju manninum var vísað úr landi. Julia segir Ruslan hafa óskað eftir því að vera fluttur til einhvers annars lands en Rússlands þar sem hann óttaðist að þar muni hann verða settur í fangelsi vegna uppruna síns. „Hann spurði hvort þeir gætu sent hann eitthvert annað en til Rússlands. Hann var hræddur um að verða settur í fangelsi vegna þess að hann er Tjetjeni," sagði Julia. Julia segist vera mjög áhyggjufull og óttast að rússnesk yfirvöld hafi nú þegar sett hann í fangelsi. Hún hefur ekkert heyrt í manninum sínum frá því hann fór af landi brott í gær. „Ég bíð bara við símann eftir að hann hringi," sagði Julia.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Sjá meira