Íslenski boltinn

Mikið að gerast á íslenska markaðnum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Hjálmar verður líklega áfram hjá Fram.
Hjálmar verður líklega áfram hjá Fram.

Það er mikið að gerast á íslenska leikmannamarkaðnum þessa dagana. Gunnar Örn Jónsson, kantmaðurinn ungi, hefur ákveðið að yfirgefa herbúðir Breiðabliks og mun skrifa undir fjögurra ára samning við KR.

Varnarmaðurinn Auðun Helgason er hættur hjá FH og samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 þá á hann í viðræðum við Val, Fram í Landsbankadeildinni og Stjörnuna í 1. deild.

Þá hefur fréttastofan heimildir fyrir því að sóknarmaðurinn Hjálmar Þórarinsson ætli sér að vera áfram hjá Fram og leika með liðinu næsta tímabil. Hjálmar hefur verið orðaður við Þrótt, sitt fyrrum félag, að undanförnu.

Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×