Erfiðar tökur hjá Spice Girls 23. október 2007 03:00 Kryddstúlkurnar eru komnar saman aftur, en tökur á nýju kynningarmyndbandi gengu allt annað en þægilega fyrir sig. nordicphotos/Getty
Það gekk á ýmsu þegar Spice Girls komu saman um síðustu helgi til að taka upp kynningarmyndband við nýtt lag sitt, Headlines (Friendship Never Ends). Kryddstúlkurnar fimm, Emma Bunton, Mel B, Mel C, Geri Halliwell og Victoria Beckham, komu saman á ný í sumar og munu senda frá Greatest Hits-plötu á næstunni, en á henni verða tvö ný lög. Headlines er annað þeirra. Við tökurnar á kynningarmyndbandinu gekk þó á ýmsu og segir heimildarmaður The Sun að tökur hafi dregist fram eftir öllu vegna hegðunar Geri Halliwell, sem fór fram á sérstaka tegund af flöskuvatni og lét tökur sitja á hakanum á meðan hún hugleiddi. „Geri hægði endalaust á öllu með því að hugleiða og standa í undarlegum trúarlegum athöfnum,“ segir hann. „Hlutunum seinkaði mjög mikið. Leikstjórinn reif í hár sitt og hótaði því að fara. Stelpurnar voru svo þreyttar og Emma grét á meðan tökurnar drógust enn,“ segir hann, en tökur stóðu yfir til klukkan þrjú um nótt. Victoria Beckham hafði líka sérþarfir á staðnum og fékk aðstoðarmann til að elta sig um tökustað með ávaxtabakka og kampavín. Mel B ku hafa varið bróðurpartinum úr deginum í að „væla yfir flugþreytu“ eftir að hafa flogið frá Los Angeles, og Mel C var að því komin að bugast. Headlines kemur út 19. nóvember næstkomandi en stúlkurnar leggja upp í tónleikaferð í desember, ef allt gengur að óskum.
Mest lesið Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Lífið Wintour víkur úr ritstjórastólnum eftir 37 ár Lífið Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Lífið Reykjalundur hlýtur alþjóðlega gæðavottun fyrir endurhæfingarþjónustu Lífið samstarf Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Djúsí maísstönglar frá BBQ kónginum Lífið samstarf Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Lífið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Fleiri fréttir Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Sjá meira