Gunnar hættir hjá V-dagssamtökunum 14. ágúst 2007 01:30 Gunnar er hættur sem framkvæmdastjóri V-dagssamtakanna en er með mörg járn í eldinum. MYND/Anton Brink „
Þetta er ekki alveg gengið í gegn en við ættum að vera búin að ganga frá þessu á allra næstu dögum," segir Gunnar Sigurðsson en hann mun hætta sem framkvæmdastjóri V-dagsins. „Það hefur verið brjálað að gera hjá V-deginum, og mér finnst eins og ég hafi ekki getað tekið þetta með þeim krafti sem ég hefði viljað gera. Tvö stærstu verkefnin, Píkusögur og verslunarmannahelgarátakið, eru nú að baki og það er dágóður tími þangað til næsta verkefni lítur dagsins ljós," segir Gunnar og telur því að nú sé rétti tíminn til að snúa sér að einhverju öðru. „Þetta eru hagsmunasamtök og einhvern veginn verður maður líka að hafa í sig og á. Og það var því ákveðið með faðmlagi að segja þetta gott í bili," bætir Gunnar við en áréttar þó að hann muni taka virkan þátt í baráttunni gegn ofbeldi gagnvart konum. Gunnar segist vera með mörg járn í eldinum, eiginlega of mörg, en vildi ekki gefa upp hvað tæki við hjá honum næst. Það ætti að skýrast á allra næstu dögum. Það hefur verið skammt stórra högga á milli hjá Gunnari því áður en hann fór að sinna verkefnum fyrir V-daginn hafði hann verið Guðmundi Steingrímssyni innan handa í Kvöldþættinum sáluga en flutti sig síðar um set og var í gestahlutverki hjá Strákunum á Stöð 2. Gunnar var síðan kosningastjóri hjá Samfylkingunni í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í fyrra en hefur síðan að þeim lauk verið framkvæmdastjóri V-dagssamtakanna.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Lífið Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Lífið samstarf Fleiri fréttir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Sjá meira