Höskuldur meiddur á þremur stöðum í einu 7. júlí 2007 10:00
Víkingurinn Höskuldur Eiríksson hefur ekkert getað leikið með norska úrvalsdeildarliðinu Viking frá Stafangri en þangað fór hann á láni frá Víking, Reykjavík, í vetur. „Ég hef einfaldlega átt í meiriháttar veseni með meiðsli, alveg síðan ég kom út,“ sagði Höskuldur við Fréttablaðið í gær en hann er staddur hér á landi þar sem norska úrvalsdeildin er í sumarfríi. „Ég hef verið meiddur á nára í tvo og hálfan mánuð, aftan í hné í þrjá mánuði og á ökkla í einn og hálfan mánuð. Ég er að reyna að nýta tímann hér heima til að fara í meðferð og ná mér góðum.“ Hann segist að hann hafi reynt að koma sér að hjá bæklunarskurðlækni til að fá ráðgjöf en bíði enn eftir því að fá tíma. „Þetta er búið að vera erfitt en ég hef verið að skríða saman og spila með varaliðinu. Það hefur gengið þokkalega en ég finn að ég er alltaf byrjaður að haltra í seinni hálfleik.“ Hann segir þetta vissulega vera vonbrigði. „Ég vissi vel að þetta gæti gerst enda eru meiðsli alltaf hluti af fótboltanum. Það er auðvitað vonandi að ég nái að koma mér í gott form þarna úti og sýni hvað í mér býr. Ég get ekki neitað því að ég sé farinn að örvænta eftir því að ná mér heilum því mér finnst ég búinn að vera svona í langan tíma án þess að batna neitt.“ Framtíðin er því í óvissu því útlit er fyrir að hann komi heim að tímabilinu loknu ákveði Viking í Stafangri ekki að kaupa hann þá. „Þetta verður bara að koma í ljós. Ég hef nú ekki enn getað sýnt þeim neitt til að gefa þeim tilefni til að kaupa mig en það er samt langlíklegast að ég klári tímabilið úti. Vonandi næ ég einhverjum mánuðum þar sem ég verð heill.“ Að lokum sagðist hann ekki útiloka neitt, það gæti vel verið að fjölskylda hans ákveði síðar í sumar að koma heim, fyrr en áætlað var.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti Fleiri fréttir Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Sjá meira