Krefst verndar fyrir stúlkurnar 10. febrúar 2007 09:00 Byrgið Pétur Hauksson segir stúlkurnar úr Byrginu þurfa félagslegan stuðning vegna barna sem þær hafa eignast. Hann þurfi að koma frá landlækni eða stjórnvöldum.
Pétur Hauksson geðlæknir segir að stjórnvöld eigi að bregðast strax við og aðstoða það fólk sem hefur orðið illa úti eftir dvöl sína í Byrginu. Pétur setti þegar árið 2002 fram grunsemdir um brotalamir í starfsemi Byrgisins. Bréf hans þess efnis dagaði uppi hjá Landlæknisembættinu, en var ekki sent áfram til þar til bærra stjórnvalda. Síðan hefur komið í ljós að ástand mála í Byrginu var miklum mun verra en nokkurn óraði fyrir, bæði hvað snerti fjármál og fleiri þætti starfsins. „Þær stúlkur sem verst hafa orðið úti í dvöl sinni í Byrginu þurfa til dæmis vernd, því þær eru í hættu. Þarna er um varasama menn að ræða og þær eru skelfingu lostnar,“ segir Pétur. „Mín skoðun er sú að það eigi að gera eitthvað fyrir þetta fólk. Mér finnst ömurlegt að þessar stúlkur þurfi að standa í því persónulega að fá málinu framgengt með kærum til sýslumanns. Það er ekkert smámál að ganga í gegnum slíkt. Þær eru hetjur, en þær eru jafnframt veikburða og eiga erfitt með þetta. Þær voru veikar fyrir og máttu ekki við því áfalli sem þær urðu fyrir. Og nú eru þær aftur að upplifa það sem áfall að það er ekkert komið til móts við þær. Mér finnst að kerfið sem brást eigi að koma inn í þetta mál með myndarlegri hjálp núna.“ Spurður hvað hann vildi að gert yrði fyrir fólk sem kom illa út úr dvöl sinni í Byrginu svarar Pétur að hann myndi vilja sjá ráðherra stíga fram og segja að ábyrgðin sé ríkisins. Það muni axla ábyrgð og gera eitthvað í málunum strax, og einnig til lengri tíma litið. Bara slík yfirlýsing myndi hjálpa fólkinu, þannig að því liði betur. „Auk verndar þurfa stúlkurnar á öryggi að halda núna. Sumar þurfa bráðahjálp vegna sinna sjúkdóma. Þær þurfa félagslegan stuðning út af börnum sem þær hafa eignast. Þetta þarf að koma frá einhverjum sem þær treysta, svo sem landlækni eða stjórnvöldum, því þær treysta vitaskuld engum lengur. En þær fá ekkert nema þögn.“ Pétur segir ekki nóg að gert með því að hið opinbera kæri Guðmund Jónsson vegna bókhalds. En þegar sér hafi verið ljóst að ekkert ætti að aðhafast í þágu fólksins þá hafi hann gripið til þess ráðs að skrifa Landlæknisembættinu í byrjun mánaðarins og fært rök fyrir því að um heilbrigðismál væri að ræða. Fólkið hafi farið í Byrgið vegna sjúkdómseinkenna í leit að meðferð. Ábyrgðin sé allt önnur heldur en ef fólkið hefði verið að leita eftir gistingu. Málið heyri undir lög um réttindi sjúklinga.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Sjá meira