Úttekt gerð á Byrginu 2002 16. janúar 2007 00:30 Páll Pétursson
Páll Pétursson, sem gegndi starfi félagsmálaráðherra á árunum 1999 til 2003, segir að félagsmálayfirvöld hafi gert úttekt á starfi Guðmundar Jónssonar í Byrginu árið 2002. Stjórnvöld vissu að starf Byrgisins, og framganga Guðmundar Jónssonar, voru mjög gagnrýniverð. Niðurstaða úttektarinnar var að starfsemin hefði verið með þeim hætti árin á undan, að ekki væri hægt að styrkja Byrgið að óbreyttu. Þess vegna taldist nauðsynlegt að gera samning um þjónustuna. Á grundvelli þess samnings keypti ríkið húsnæði að Efri-Brú auk þess að greiða hluta leigu húsnæðisins. Inntur eftir því hvernig á því stæði að ákveðið var að kaupa sérstakt húsnæði fyrir Byrgið þegar sýnt var að starfsemin stóðst ekki kröfur félagsmálayfirvalda segir Páll: „Ég held að engum hafi dottið í hug að það væri hagur að því að loka Byrginu. Hins vegar vildu allir hafa þetta í lagi.“ Páll telur að eftirlit með Byrginu hafi verið í lagi í ráðherratíð hans enda hafi Aðalsteinn Sigfússon, félagsmálastjóri í Kópavogi, sem vann úttektina fyrir félagsmálayfirvöld mælt með því að starfsemi Guðmundar yrði styrkt og að starf Byrgisins skilaði nokkrum árangri. Páll telur sýnt að mun dýrara hefði verið fyrir yfirvöld að reka meðferðarheimili en að styrkja Byrgið eins og reyndin varð.
Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent Fleiri fréttir Salmonella greindist í kryddi Kokka Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Sjá meira