Aðgerðir vegna uppsagna hjá Alcan 9. október 2006 17:42
Formenn verkalýðsfélaga velta nú fyrir sér aðgerðum vegna þess sem þeir kalla siðlausar uppsagnir hjá Alcan í Straumsvík og undirbúa meðal annars fund með starfsfólki fyrirtækisins. Einn þriggja starfsmanna, sem sagt var upp nú fyrir helgi, segir að kuldi og mannvonska einkenni stjórnarhætti æðstu stjórnarmanna Alcan.Trúnaðarmaður starfsmanna í álveri Alcan,Gylfi Ingvarsson, sagði í samtali við NFS í dag að frá undirritun kjarasamninga 1. mars 2005 hafi fyrirtækið sagt upp 9 starfsmönnum án þess að tilgreina ástæður og viðkomandi ekki gert að vinna uppsagnarfrestinn. Starfsmennirnir eigi það allir sameiginlegt að búa yfir mikilli starfsreynslu.Þremur starfsmönnum sagt upp á fimmtudag og einn þeirra er Hans Hafsteinsson, rafvirki sem hefur starfað í tæp 36 ár í álverinu í Straumsvík. Hann var kallaður á fund fund verkstjóra og starfsmannastjóra og afhent uppsagnarbréf. Þegar Hans vildi vita af hverju var honum tjáð að hann væri einfaldlega ekki nógu góður starfsmaður. Hans lenti í vinnuslysi fyrir nokkrum árum þar sem honum var vart hugað líf en náði sér að mestu. Í kjölfarið reyndi ÍSAL að koma sér undan greiðslu lögmætra tryggingabóta. Rafiðnaðarsambandið höfðaði mál á sínum tíma fyrir hönd Hans og vann það. Hans segir að alla tíð síðan hafi mætt honum andúð yfirmanna sinna og tilgreinir þar sérstaklega forstjóra Alcan, Rannveigu Rist og starfsmannastjóra fyrirtækisins.Aðspurður um starfsandann í álverinu segir hann að þar ríki stöðugur ótti sérstaklega hjá starfsmönnum með mikla reynslu þar sem fyrirtækið reyni að koma mönnum undan því að láta þá ná svokölluðum flýtistarfslokum sem samið hafi verið um fyrir nokkrum árum. Flýtistarfslokum fylgi töluverð fríðindi sem Alcan hafi greinilega ekki áhuga á að greiða.Í fjölmiðlum um helgina greindi Hrannar Pétursson,upplýsingafulltrúi Alcan, frá frammistöðumati sem notast er við hjá Alcan til lengri tíma til að komast að því hvort starfsmaður eigi samleið með fyrirtækinu. Trúnaðarmaður segist ekki vita um þetta svokallaða heildstæða mat á frammistöðu til lengri tíma og segir að fulltrúar verkalýðsfélaga sem skrifa undir samninga fyrir starfsmenn Ísal hafa lagt sérstaka áherslu á það í síðustu kjarasamningaviðræðum að koma á svokallaðri vörn gegn óréttmætum uppsögnum sem ekki tíðkast í íslenskum lögum.Ekkert hafi gengið í því að koma þeirri vörn á og nú séu aðgerðir í undirbúningi.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira