Helmingur styður sitjandi ríkisstjórn 1. júlí 2006 07:45
50,8 prósent segjast stuðningsmenn núverandi ríkisstjórnar samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 49,2 prósent af þeim sem tóku afstöðu segjast því ekki styðja ríkisstjórnina nú í þessari fyrstu könnun Fréttablaðsins sem birt er um stuðning við ríkisstjórn eftir að Geir H. Haarde tók við sem forsætisráðherra. Samanlagður stuðningur við ríkisstjórnarflokkana í könnun Fréttablaðsins sem birt var í gær var 53,1 prósent og því eru heldur fleiri sem myndu kjósa Sjálfstæðisflokk eða Framsóknarflokk nú, en styðja samstarf þeirra í ríkisstjórn. Mun fleiri íbúar utan höfuðborgarsvæðisins eru fylgjandi ríkisstjórninni, en á höfuðborgarsvæðinu hefur ríkisstjórnin ekki stuðning meirihluta íbúa. Á landsbyggðinni segjast 56,4 prósent íbúa styðja stjórnina, en 47,1 prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins er sama sinnis. Því eru það tæplega 53 prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins sem styðja ekki núverandi ríkisstjórn. Ef skoðað er samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna tveggja segjast 54,4 prósent íbúa á landsbyggðinni myndu kjósa annaðhvort Sjálfstæðisflokk eða Framsóknarflokk. Á landsbyggðinni er því meiri stuðningur við ríkisstjórnina en við flokkana tvo sem standa að henni. Á höfuðborgarsvæðinu segjast hins vegar 52,3 prósent myndu kjósa annan hvorn ríkisstjórnarflokkinn væri boðað til kosninga nú, sem er rúmlega fimm prósentustigum meira en stuðningur höfuðborgarbúa við núverandi ríkisstjórn. Lítill sem enginn munur er á afstöðu karla og kvenna, en 50 prósent karlmanna segjast styðja núverandi ríkisstjórn, en 50,7 prósent kvenna eru ríkisstjórninni fylgjandi. Hvort sem litið er til karlmanna eða kvenna eru þó fleiri sem segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokk eða Framsóknarflokk en segjast styðja ríkisstjórnina. 54,3 prósent karlmanna segjast styðja ríkisstjórnarflokkana, sem er rúmlega þremur prósentustigum meira en stuðningur karla við ríkisstjórnina. 51,8 prósent kvenna segjast styðja Sjálfstæðisflokk eða Framsóknarflokk, sem er rúmu prósentustigi meira en stuðningur kvenna við ríkisstjórnina. Gallup spyr í hverjum mánuði um stuðning við ríkisstjórnina og í apríl og maí sögðust 48 prósent styðja ríkisstjórnina. Þrátt fyrir að um mismunandi framkvæmd á könnun sé að ræða, þá er spurningin sem spurð er í þessu tilviki mjög áþekk og því tölurnar sambærilegar. Stuðningur við ríkisstjórnina virðist því hafa aukist örlítið við það að Geir H. Haarde tók við sem forsætisráðherra. Halldór Ásgrímsson virðist þó hafa haft örlítið meiri meðbyr þegar hann tók við sem forsætisráðherra 15. september 2004, en Geir H. Haarde hefur nú. Í septemberkönnun Gallup 2004 þar sem spurt var: Styður þú ríkisstjórnina?, sögðust 52 prósent aðspurðra styðja ríkisstjórnina, en í sömu könnun var samanlagt fylgi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks 49 prósent. Það var því heldur meiri stuðningur við ríkisstjórnina en ríkisstjórnarflokkana þegar Halldór tók við forsætisráðuneytinu. Hringt var í 800 kjósendur miðvikudaginn 28. júní og skiptust svarendur jafnt milli kynja og hlutfallslega eftir kjördæmum. Spurt var: Styður þú núverandi ríkisstjórn? 90,3 prósent tóku afstöðu til spurningarinnar.
Innlent Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Innlent „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Innlent Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Erlent „Þetta var rétt ákvörðun“ Innlent Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið Annað innbrotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Rokið, haustlitir og lauf út um allar trissur Fjöldi sjálfsvíga svipaður og fyrri ár Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Tilkynningar um heimilisofbeldi milli foreldra og barna tvöfaldast 350 milljóna tekjur Þingvalla í húfi vegna náttúrupassa Dapurlegt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Bókun 35 og óveður setur strik í reikninginn Pallborðið í heild sinni: Klukkan tifar og staðan viðkvæm Sjá meira