Innlent

Peningafalsari á ferð í borginni

MYND/Hari

Peningafalsari var á ferðinnni um helgina því tveimur fölsuðum fimm þúsund króna seðlum var framvísað í verslunum. Báðir höfðu þeir verið ljósritaðir og báru þeir sama númer. Fram kemur á vef lögreglunnar að af því megi ráða að þeir komi frá sama aðila. Mál sem þessi skjóta upp kollinum öðru hverju og þess vegna biður lögreglan í Reykjavík fólk að vera á varðbergi og hafa augun hjá sér, ekki síst þá sem starfa við afgreiðslustörf.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×