Innlent

Sterkasti maður í heimi hefst í Straumsvík í dag

MYND/Eiríkur Jónsson
Keppnin um sterkasta mann í heimi hefst hér á landi í dag. Undanúrslit hefjast klukkan 14 í álveri Alcan í Straumsvík en þar munu 24 kraftajötnar reyna með sér í þremur átta manna riðlum. Fjórir menn komast áfram úr hverjum riðli í úrslitakeppnina sem fram fer í Reiðhöllinni í Víðidal á föstudag og laugardag. Íslendingar eiga þrjá fulltrúa í keppninni, þá Benedikt Magnússon, Stefán Sölva Pétursson og Georg Ögmundsson. Keppt er um bikar sem helgaður er minningu Jóns Páls Sigmarssonar, fyrrverandi kraftajötuns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×