Norðmenn vilja meira erlent vinnuafl til að halda niðri launum 16. nóvember 2006 15:55 Frá Osló
Norðmenn íhuga að opna landamæri sín fyrir verkafólki frá Rúmeníu og Búlgaríu, til þess að koma í veg fyrir launahækkanir, sem þeir kæra sig ekki um.Norðmenn hafa notið góðs af vinnuafli frá fyrrverandi Austantjaldsríkjum undanfarin ár og er talið að yfir eitthundrað þúsund manns þaðan séu nú á vinnumarkaði í Noregi, flestir frá Póllandi. Efnahagur Noregs er í uppsveiflu og þar er nú skortur á vinnuafli.Rúmenía og Búlgaría fá aðild að Evrópusambandinu um næstu áramót og íbúar þessara landa verða þarmeð aðilar að vinnumarkaði aðildarríkjanna. Noregur er ekki, frekar en Ísland, aðili að Evrópusambandinu, en Norðmenn hafa, eins og Íslendingar, undirritað samning um frjálst flæði vinnuafls.Íslendingar ætla að nota sér leyfðan aðlögunartíma og hafa því frestað því að opna landamærin fyrir vinnuafli frá Rúmeníu og Búlgaríu. Norðmenn munu hinsvegar, að öllum líkindum opna sín landamæri upp á gátt.Jan Erik Stoested, ráðherra í Atvinnumálaráðuneytinu segir að þeir séu hlynntir því að fá vinnuafl frá þessum löndum. Hann segir að áhersla verði lögð á að tryggja að þetta fólk fái sömu laun og réttindi og innfæddir.Stoested segir að það sé skortur á vinnuafli í Noregi og undir venjulegum kringumstæðum myndi það þrýsta launum uppávið. Þess í stað fái þeir nýtt vinnuafl, sem auki jafnvægi á vinnumarkaði og í launum.
Erlent Fréttir Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Sjá meira