Innlent

Fyrsta skautamótið um helgina

MYND/Vilhelm Gunnarsson

Keppnistímabilið í listdansi á skautum hefst um helgina með haustmóti í Skautahöllinni í Laugardal. Á mótinu spreyta sig um 80 keppendur á aldrinum 7-19 ára. Að sögn Íslenska skautasambandsins er mikill uppgangur í íþróttinni og er fólk hvatt til að koma og fylgjast með, aðgangur er ókeypis.

Einungis er keppt í einstaklingsdansi enda fáir drengir sem leggja fyrir sig listdans á skautum. Samhæfður listdanshópur sem æfði á vegum Skautafélags Reykjavíkur hefur ekki haldið áfram að æfa, þrátt fyrir að hafa staðið sig prýðilega á erlendum mótum, að sögn June Evu Clark, fulltrúa í mótaröð ÍSS.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×