Erlent

Chavez hótar stjórnvöldum í Perú

Hugo Chaves, forseti Venesúela.
Hugo Chaves, forseti Venesúela. MYND/AP

Hugo Chavez, forseti Venesúela, hótar því að hætta öllum samskiptum við Perú ef Alan Garcia verði kjörinn forseti landsins. Chavez lét hafa þetta eftir sér í kjölfar þess að Garcia gagnrýndi hann opinberlega.

Chavez hótaði því að kalla sendiherra Venesúela heim frá Lima, höfuðborg Perú. Chavez hefur stutt við bakið á Ollanta Humala, frambjóðanda þjóðernissinna, í kosningabaráttunni. Humala fékk flest atkvæði í fyrstu umferð kosninganna en náði ekki hreinum meirihluta atkvæða. Því þarf að kjósa milli hans og Garcia sem var annar í fyrstu umferð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×