Erlent

Pólon finnst í líkama annars manns

Mario Scaramella lifði eitrunina af.
Mario Scaramella lifði eitrunina af. MYND/AP

Talsvert magn af póloni 210, efninu sem varð njósnaranum fyrrverandi Alexander Litvinenko að bana, hefur fundist í líkama Marios Scarabella, ítalsks fræðimanns sem þekkti Litvinenko. Þeir snæddu hádegisverð daginn sem Litvinenko var lagður inn á sjúkrahús með eitrunareinkenni.

Scaramella er enn á lífi og ekki hefur komið fram hvort hann er grunaður um verknaðinn eða telst annað fórnarlamb.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×