Lífið

Gekk bölvanlega að semja lag fyrir KF Nörd

Halla Vilhjálmsdóttir Syngur lagið með knattspyrnuliðinu KF Nörd.
Halla Vilhjálmsdóttir Syngur lagið með knattspyrnuliðinu KF Nörd.

Raunveruleikaþátturinn KF Nörd hóf göngu sína á Sýn fyrir ekki margt löngu og hefur hlotið ágætis viðtökur sjónvarpsáhorfenda. Í þætti kvöldsins reyna strákarnir fyrir sér á nýjum vettvangi en eins og öllum frægum liðum sæmir verður KF Nörd að hafa sitt einkennislag.

Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson var fenginn til að semja þetta lag fyrir nirðina og þegar Fréttablaðið náði tali af tónlistarmannninum var hann á fullu við upptökur á nýjustu plötu Todmobile. Þetta gekk alveg bölvanlega, segir Þorvaldur. Alveg hrikalega erfitt að semja svona létt dúr-lög sem allir eiga að geta sungið með, heldur lagasmiðurinn áfram. Vignir Snær Vigfússon var mér innan handar og lamdi hausnum við vegg reglulega en svo fórum við að glamra eitthvað og þá kom þetta, útskýrir Þorvaldur og segist ekki hafa legið yfir vinsælum íþróttalögum á borð við Við erum KR eftir Bubba Morthens eða Vi er røde, vi er hvide en það var einkennislag danska landsliðsins sem sló í gegn árið 1986.

Andrea Gylfadóttir, samstarfskona Þorvaldar í Todmobile, samdi textann við lagið og sagðist hún nú hafa smá innsýn inn í heim knattspyrnunnar. Ég bjó nú á Akranesi í tíu ár, segir hún. Og það er allt opið þegar kemur að textagerð, útskýrir söngkonan en til gamans má geta að Andrea var valin markmaður Rock - Cup keppninnar árið 1995 enda fékk hún ekki mark á sig þá um árið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.