Megum ekki missa ferðamannahagnaðinn úr landi 6. september 2006 12:22
Forstöðumaður Ferðamálaseturs Íslands segir að sífelld fjölgun ferðamanna og aukin ítök stórra erlendra ferðaskrifstofa geti leitt til lækkunar launa í ferðaþjónustu og að skýra stefnumörkun þurfi til þess að hagnaðurinn hverfi ekki úr landi. Edward Huijben, forstöðumaður setursins, segir reynslu Spánverja vera eitt skýrasta dæmið um það hvernig massaferðamennska getur verið fátæktargildra fyrir heimamenn. Þar skipuleggja stórar alþjóðlegar ferðaskrifstofur ferðirnar og alþjóðlegar hótelkeðjur eiga stærstu gististaðina og allt sem er eftir fyrir heimamenn eru láglaunastörf í veitingasölu og gistiþjónustu. Því sé ekki eingöngu gleðiefni þó að fjöldi ferðamanna aukist ár frá ári. Edward segir þetta ýkta mynd en að þó sé þegar farið að örla á þessari þróun hér á landi. Utan Reykjavíkur og Akureyrar gegni erlent vinnuafl nú mörgum störfum á gististöðum og ferðaþjónustu almennt, þar sem Íslendingarnir vilji ekki taka að sér þessi störf. Hann segir einnig að stórar ferðaskrifstofur séu nú þegar farnar að hafa áhrif á ferðaþjónustumarkaðinn á Íslandi. Þær pressi niður verðið sem hafi þau áhrif að laun lækki enn frekar í geiranum. Því verði að vinna skýra stefnu í ferðaþjónustu á Íslandi með það að markmiði að hagnaður af ferðamannastraumi verði eftir hér á landi en renni ekki allur í sjóði erlendra ferðarisa. Þannig nefnir hann sem dæmi að hægt sé að setja það sem skilyrði að ferðaþjónusta sé að mestu leyti í eigu heimamanna og að hún sé einnig á þeirra forsendum en ekki í óþökk heimamanna. Hann bætir því þó við að langtímaáhrif af ferðaþjónustu á Íslandi hafi ekki verið rannsökuð sem skyldi og vonast til þess að úr því fáist bætt á næstu árum.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Fleiri fréttir Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir höfðu legið ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Sjá meira