Mikil upphefð fyrir lítinn veitingastað við höfnina 14. nóvember 2006 12:30 veitingastaðurinn sægreifinn Kjartan segir viðskiptavinina jafn ánægða með humarsúpuna og blaðamaður New York Times. MYND/Vilhelm
Veitingastaðurinn Sægreifinn, og sérstaklega humarsúpan sem prýðir matseðil hans, hlaut á sunnudag lofsamlega umfjöllun í þeim hluta New York Times sem helgaður er ferðalögum. Þetta ætti ekki að koma þeim sem stundað hafa staðinn á óvart, en hann hefur notið mikilla vinsælda. Sérstaklega hafa miðbæjarbúar farið fögrum orðum um veitingarnar. Sægreifinn er einn þeirra veitingastaða sem glæða Reykjavíkurhöfn lífi, en þar má bæði njóta tilbúinna fiskrétta og kaupa sér spriklandi ferskan fisk í soðið. Í umfjölluninni í dagblaðinu virta segir meðal annars að hina fullkomnu humarsúpu sé að finna á Sægreifanum, súpan sé hreint út sagt ljúffeng og það fyrsta sem fólk eigi að láta inn fyrir varir sínar þegar komið er til Reykjavíkur. Þar segir jafnframt að miðað við verð og gæði súpunnar sé hreinlega ekki hægt að gera betur en Sægreifinn. Kjartan Halldórsson, eigandi Sægreifans, hafði ekki fengið tækifæri til að lesa umfjöllunina þegar Fréttablaðið hafði samband við hann. Stuttur útdráttur úr greininni vakti þó mikinn fögnuð greifans og fyrrverandi sjómannsins, og kvaðst Kjartan hæstánægður með umfjöllunina. „Ég er náttúrulega gríðarlega ánægður með þetta. Það er mikið atriði að fá svona umfjöllun, og sér í lagi hjá svona blaði. Þetta er bara mikil upphefð,“ sagði hann. Aðspurður hvort dómur New York Times væri í samræmi við þau viðbrögð sem Kjartan fær hjá viðskiptavinum sínum sagði hann svo vera. „Ég fæ alltaf góða umfjöllun og viðtökur hjá fólki, og er voðalega hamingjusamur með það,“ sagði Kjartan.
Menning Mest lesið Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Lífið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Lífið Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Lífið Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Lífið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Sjá meira