Kröfum Péturs Þórs hafnað 28. júní 2006 04:45 Pétur Þór Gunnarsson
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær íslenska ríkið af skaðabótakröfum Péturs Þórs Gunnarssonar. Pétur krafðist þess að honum yrðu greiddar tæpar 4 milljónir í skaða- og miskabætur vegna synjunar Fangelsismálastofnunar um reynslulausn úr fangelsi í júlí árið 2000. Þá hafði hann afplánað helming af sex mánaða fangelsisdómi vegna fjársvika og skjalafals. Synjunin var gerð á þeim forsendum að á sama tíma stóð yfir rannsókn hjá embætti Ríkislögreglustjóra á meintum málverkafölsunum Péturs. Á grundvelli þeirrar rannsóknar var Pétur kærður árið 2003 og sýknaður í Hæstarétti rúmu ári síðar. Fram kemur í dómi héraðsdóms að heimilt sé að veita föngum reynslulausn, en það sé undantekning. Þá er einnig ákvæði sem segir að mönnum sé ekki veitt slík reynslulausn, sé ólokið öðru máli þar sem viðkomandi er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi. Taldi Pétur að það ákvæði stangaðist á við stjórnarskrá sem og mannréttindasáttmála Evrópu þar sem fram kemur að hver sá sem borinn er sökum, skuli talinn saklaus, uns sekt er sönnuð. Dómurinn fellst ekki á að í ákvæðinu felist, að fangelsisyfirvöldum sé gert að meta sekt viðkomandi eða sýknu í málum þeim sem kunni að vera ólokið. Þá segir að ekki verði séð að slíku mati hafi verið beitt við afgreiðslu umsóknar Péturs um reynslulausn. Því var ríkið sýknað af öllum kröfum en málskostnaður fellur niður. Ekki náðist í Pétur vegna dómsins í gær.
Innlent Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Erlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Innlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Innlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Innlent Fleiri fréttir Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Sjá meira