Seldi lag í hafnaboltaauglýsingu 28. júní 2006 15:00 Bela Tónlistarmaðurinn Bela hefur gefið út plötuna Hole and Corner.
Nýverið var fjallað um plötuna Hole and Corner með íslenska tónlistarmanninum Bela í bandaríska tónlistartímaritinu Billboard. Bela er listamannsnafn Baldvins Ringsted sem fluttist til Glasgow í listnám á síðasta ári. Á heimasíðu Billboard segir að á plötunni sé blandað saman gömlu rokki og nýju. Raddirnar séu viðkvæmar og slide-gítarleikurinn sé myrkur en fágaður. "Stundum hljómar röddin eins og John Mayer en bjartur og naumhyggjulegur gítarleikurinn í lögum eins og Stones minnir meira á Nick Drake," segir í umfjölluninni.Útgáfusamningur í BretlandiÁður en Baldvin fór út hafði hann tekið upp töluvert af efni og fékk þar m.a. aðstoð Pálma Gunnarssonar, bassaleikara, og Birgis Hilmarssonar, söngvara Ampop, sem syngur bakraddir og spilar á ásláttarhljóðfæri í nokkrum lögum. Þegar út var komið sendi Bela demó á nokkur útgáfufyrirtæki og Say Dirty Records hringdu til baka nánast samdægurs og buðu samning. Þegar sá var í höfn var hafist handa við að púsla saman plötu og Marcus MacKay (Snow Patrol, Reindeer Section, Zephers) var fenginn til aðstoðar, sem og ýmsir hljóðfæraleikarar. Söngkonan Gemma Hughes syngur jafnframt í tveimur lögum. Upptökur á sjö stöðum Baldvin segist hafa byrjað á plötunni snemma á síðasta ári. "Það er búið að taka hana upp á sjö stöðum allt í allt. Maður er að innheimta greiða hjá einhverjum og betla út greiða hjá öðrum," segir Baldvin, sem ólst upp við að hlusta á allskonar tónlist. Segir hann plötuna endurspegla það að miklu leyti. "Þetta er svolítið eins og ég ólst upp við hjá foreldrum mínum. Ég man þegar ég var lítill þá festust í manni hljómsveitir eins og Crosby og Stills og America og allt það dót. Svo fer maður seinna að hlusta á Nick Drake og eitthvað nýrra eins og Elliott Smith og Belle and Sebastian. Þessir listamenn hafa líka svolítið verið að taka úr þessu gamla," segir hann. Lag í auglýsinguHole and Corner var gefin út í Bretlandi þann 19. júní en fer þó ekki í almenna dreifingu fyrr en í lok júlí þar sem útgáfudeginum var frestað. Platan er ekki enn komin út í Bandaríkjunum en einhverjir Bandaríkjamenn sem búa á austurströndinni hafa þó hugsanlega heyrt lagið Jerome sem er að finna í hafnaboltaauglýsingu nokkurri. Bela mun spila hér á landi í júlí og heldur meðal annars tónleika í verslun 12 Tóna og spilar á Rás 2. Þeir sem vilja nálgast frekari upplýsingar um Bela er bent á heimasíðuna www.myspace.com/belamusicforpeople.freyr@frettabladid.is
Menning Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Fleiri fréttir Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Sjá meira