Innlent

Frítt í strætó fyrir austan

Ókeypis almenningssamgöngur eru tilraunaverkefni sem unnið er að á Fljótsdalshéraði. Að sögn Óðins Gunnars Óðinsonar þróunarstjóra verður keyrt á Egilsstaði, Fellabæ, Hallormsstaði, Eiða og Brúarás og reynt að tengja það saman við skólaakstur sem fyrir er.

Ferðatíðnin verður misjöfn en mest verður hún á milli Egilsstaða og Fellabæjar en verkefnið er til þriggja ára og hefst formlega í haust. Sveitarfélagið Fljótsdalshérað varð til árið 2004 og er fjölmennasta sveitarfélag Austurlands en stærsti þéttbýliskjarninn er á Egilsstöðum. -




Fleiri fréttir

Sjá meira


×