Tregablandið stuðlag 1. mars 2005 00:01
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, lagahöfundur og upptökustjóri, er að leggja lokahönd á lagið sem verður framlag Íslands til söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í ár. Selma Björnsdóttir mun flytja lagið en það er tregablandið ástarlag. Heiti lagsins hefur ekki enn verið gefið upp. "Ég og Vignir Snær úr Írafári fórum upp í sveit með kassagítara og kassettutæki og hömruðum okkur saman. Lagið er byggt á hugmynd Vignis sem við unnum síðan út frá," útskýrir Þorvaldur Bjarni um tilurð lagsins. Þorvaldur Bjarni segir að lagið sé allt öðruvísi en All out of luck sem Selma söng í Ísrael árið 1999, þegar hún náði öðru sæti í Evróvision-keppninni. Hann lýsir nýja laginu sem mellonkollísku eða tregablöndnu stuðlagi. "Þetta er allt öðruvísi lag en All out of luck. Það er öðruvísi melódía og ekki eins bjart -- það kemur tregi á móti stuði." Þorvaldur Bjarni vill ekki meina að klassíska Evróvisionshækkun verði að finna í nýja laginu. "Það er eiginlega plathækkun í laginu. Það kemur spilakafli í miðju lagi og hann hækkar tóntegund lagsins. En það verður ekki svona kórus sem hækkar í lokin eins og oft áður." Lagið verður sungið á ensku en textann við það vann Selma í samstarfi við Lindu Thompson, þekktan bandarískan texta- og lagahöfund sem hefur meðal annars samið lög fyrir heimsfræga flytjendur á borð við Celine Dion og Toni Braxton. "Textinn er með þessum trega sem er í laginu og fjallar um endurgoldna eða óendurgoldna ást," segir Þorvaldur Bjarni, sem er á leið til London til að fullvinna lagið með upptökustjóranum Ash Howes. Sjálft lagið verður frumflutt í þættinum Laugardagskvöld með Gísla Marteini þann 19. mars en sjálf Evróvision-keppnin fer fram í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, þann 19. maí.
Menning Mest lesið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Halldór Haraldsson er látinn Tónlist „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Fleiri fréttir „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Sjá meira