Brotið gegn samningi 15. apríl 2005 00:01 "
Við teljum það kjaraskerðingu að hafa 30 stunda stopp." Þetta voru viðbrögð Guðmundar Steingrímssonar, vélstjóra á Sólbaki EA, við niðurstöðu Félagsdóms sem segir að Útgerðarfélagið Sólbakur hafi brotið gegn ákvæðum kjarasamnings milli LÍÚ og Velstjórafélags Íslands með því að tryggja þeim Guðmundi og Kristjáni Erlingssyni ekki 30 stunda hafnarfrí þegar Sólbakur lagðist að bryggju á Eskifirði í fyrra. Útgerðarfélagið Sólbakur var dæmt til að greiða Vélstjórafélaginu 250.000 krónur í málskostnað. "Það er í góðu lagi að Vélstjórafélagið kanni hvað sé rétt og rangt í þessu máli. En ég vil ekki sjá þetta 30 stunda hafnarfrí," segir Guðmundur. Samkvæmt samningi við áhöfnina á Sólbaki er hafnarfrí ein af hvejum þrem veiðiferðum í stað 30 stunda eftir hverja ferð. Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélagsins, segir að með dómnum sé það staðfest að með kjarasamningum á Sólbaki EA hafi landslög verið brotin. "Það liggur skýrt fyrir að Guðmundur Kristjánsson hafi ekki farið eftir kjarasamningum og íslenskum landslögum. Við viljum bara tryggja að þeir fari eftir okkar kjarasamningum." Aðspurður að því hvort það skjóti ekki skökku við ef vélstjórarnir á Sólbaki séu ósáttir við niðurstöðu Félagsdóms, sagði Helgi að málið var ekki höfðað fyrir þeirra hönd, heldur fyrir hönd Vélstjórafélagsins til að tryggja að farið sé eftir samningum. Hann er ekki sammála því að 30 tíma hafnarfrí sé kjaraskerðing miðað við núverandi stöðu. "Ég er búinn að reikna þetta út og þeir fá 40 prósentum meira ef farið er eftir okkar samningum." Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims segir niðurstöðu Félagsdóms vera óskiljanlega og þeir muni skoða sín mál í framhaldinu, þar á meðal hvað muni gerast ef ekki verður farið eftir dómnum. Fyrir dómi hélt Útgerðarfélagið Sólbakur því fram að Vélstjórafélagið væri ekki aðili að málinu, þar sem útgerðarfélagið sé ekki aðili að LÍÚ og því ekki að kjarasamningi LÍÚ og Vélstjórafélagsins. Þetta samþykkti Félagsdómur ekki. Þá hélt útgerðarfélagið því fram að ekki væri um kjaraskerðingu að ræða. Það samþykkti félagsdómur ekki heldur.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sjá meira