Ósætti í fjárlaganefnd 8. júní 2005 00:01
Meirihluti fjárlaganefndar samþykkti í dag, í trássi við vilja stjórnarandstöðunnar, að hætta athugun á einkavæðingu bankanna. Stjórnarandstaðan segir mörgum spurningum enn ósvarað. Lúðvík Bergvinsson alþingismaður segir að stjórnarandstaðan muni nú íhuga hvort þess verði krafist að þing verði kallað saman vegna málsins. Einkavæðingarnefnd beið í rúman klukkutíma eftir að koma fyrir fjárlaganefnd en ríkisendurskoðandi var á fundi nefndarinnar. Fundur einkavæðingarnefndar með þingmönnunum stóð síðan í rúmar þrjár klukkustundir. Eftir fundinn ákvað meirihlutinn að falla frá frekari rannsókn. Stjórnarandstaðan telur hins vegar fulla þörf á því að halda málinu áfram. Komið hafi fram í máli ríkisendurskoðanda í dag að rangar upplýsingar hafi verið gefnar um eignarhald á Hesteyri sem Skinney - Þinganes, fjölskyldufyrirtæki forsætisráðherra, átti stóran hlut í. Hesteyri átti stóran hlut í Keri sem leiddi samningaviðræðurnar um Búnaðarbankann fyrir hönd S-hópsins. Lúðvík segir að þar hafi ekki komið fram að Skinney - Þinganes sé 50% eigandi í bréfi sem einkavæðingarnefnd er sent 2. september. Lúðvík segir þetta og margt annað þarfnast nánari skýringa og veki upp spurningar um hæfi forsætisráðherra í málinu. Stjórnarandstaðan sé afar ósátt við að hætta á þessum tímapunkti og þetta þyrfti að ræða á þinginu. Hann segir því koma til greina af sinni hálfu að kalla Alþingi saman. Meirihluti fjárlaganefndar telur hins vegar nóg að gert. Magnús Stefánsson, formaður fjárlaganefndar, segir að ítarlega hafi verið farið yfir málið og það sé þeirra mat að málið sé upplýst. Aðspurður segir hann að ekki hafi verið óskað eftir því að Halldór Ásgrímsson yrði kallaður fyrir nefndina, ekki frekar en einhverjir aðrir ráðherrar sérstaklega. Það hafi aðeins verið rætt. Aðspurður vill hann ekki fullyrða hvort eitthvað í málinu þarfnist frekari skoðunar.
Alþingi Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Sjá meira