Eggjum og grjóti kastað í lögreglu 16. ágúst 2005 00:01
Lögreglu og mótmælendum brottflutningsins frá Gaza-ströndinni laust saman í gær og voru fimmtíu manns handteknir í kjölfarið. Þetta eru verstu átök sem komið hefur til vegna brottflutningsins. Í gærmorgun sagaði lögregla í sundur aðalhlið Neve Dekalim, stærstu landnemabyggðina á Gaza, svo að 120 flutningabílar kæmust að húsum fólks til þess að flytja búslóðir þess. Innan skamms var hins vegar fjöldi fólks kominn á vettvang og lét múgurinn ófriðlega. Þegar lögreglumenn reyndu að koma fólkinu á brott tók það að henda í þá eggjum, grjóti og öðru lauslegu og kveiktu auk þess í ruslagámum. Fimmtíu manns voru hnepptir í varðhald í kjölfarið. Nokkrum klukkustundum síðar héldu mótmælendur sína leið og flutningabílarnir komust að húsunum, sumir þó undir strangri hervernd. Síðdegis í gær höfðu þrjár landnemabyggðir af átta á Gaza verið tæmdar og tvær af fjórum á Vesturbakkanum. Shaul Mofaz, varnarmálaráðherra Ísraels, kvaðst í gær vonast til þess að undir kvöld væri helmingur landnemanna 8.500 horfinn á braut. Á miðnætti í nótt rann svo út fresturinn sem landnemarnir höfðu til þess að flytja með góðu, herinn hyggst flytja þá með valdi í dag.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira