Allir eru taldir af 16. ágúst 2005 00:01
Allt að 160 manns eru taldir hafa látist þegar farþegaþota West Caribbean Airways á leið frá Panama til Martiník hrapaði í skóglendi í vestanverðu Venesúela. Vélarbilun virðist vera orsök slyssins. Flugvélin, sem var af tegundinni McDonnell Douglas MD-82, var á leið frá Panama til frönsku eyjunnar Martiník í Karabíska hafinu. Um borð voru 153 martinískir ferðamenn á leið heim úr sumarleyfi frá Panama, auk átta manna áhafnar. Um klukkan þrjú í fyrrnótt að staðartíma óskuðu flugmenn vélarinnar eftir því við flugumferðarstjórn í Karakas í Venesúela að fá að lækka flugið úr 31.000 feta hæð niður í 14.000 fet þar sem hvorugur hreyfill vélarinnar starfaði eðlilega. Tíu mínútum síðar missti flugturninn allt samband við vélina en þá var hún yfir Machiques í Zulia-héraði sem er skammt frá kólumbísku landamærunum. Um svipað leyti heyrðu margir íbúar héraðsins sprengingu. Björgunarsveitir voru strax sendar á vettvang en svæðið er skógi vaxið og því erfitt yfirferðar. Auk þess er mikil úrkoma á svæðinu þannig að aðstæður eru allar hinar verstu. Fréttamaður venesúelsku sjónvarpsstöðvarinnar Globovision sagði í samtali við CNN-stöðina að talsverðan reyk legði upp úr skóginum og að brak úr vélinni virtist hafa dreifst yfir stórt svæði. Ekki eru taldar neinar líkur á að nokkur hafi komist lífs af úr slysinu. Jacques Chirac, forseti Frakklands, vottaði vinum og ættingjum þeirra sem fórust sína dýpstu samúð. Hann sendi Francois Baroin, ráðherra franskra yfirráðasvæða í öðrum ríkjum, strax til Martiník. Franskir flugslysasérfræðingar eru jafnframt á leið á slysstað til að grafast fyrir um orsakir slyssins. West Caribbean Airways er lágfargjaldaflugfélag sem var stofnað árið 2000 og flýgur til nokkurra staða á svæðinu. Í mars fórst lítil flugvél flugfélagsins sem var á leið frá kólumbísku eynni Providencia og létust þá átta manns.
Erlent Fréttir Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Sjá meira