Sport

Clijsters sigraði í Los Angeles

Belgíska tenniskonan Kim Clijsters sigraði Danielu Hantuchovu frá Slóvakíu 6-4 og 6-1 í úrslitum á tennismóti í Los Angeles í gærkvöldi. Clijsters hefur spilað 32 leiki á mótum í Bandaríkjunum og unnið 31 þeirra. Síðast tapaði hún fyrir löndu sinni Justine Henin Hardenne í úrslitum á Opna bandaríska meistaramótinu 2003. Spánverjinn Rafel Nadal sigraði Bandaríkjamanninn Andre Agassi í úrslitum á Masters-mótinu í Montreal í Kanada. Nadal vann fyrsta settið en Agassi jafnaði metin áður en Nadal tryggði sér sigur í oddasettinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×