Sport

Búið að velja skíðalandsliðið

Skíðasamband Íslands hefur tilkynnt um val á landsliðinu. Í alpagreinalandsliðinu eru Dalvíkingarnir Björgvin Björgvinsson og Kristinn Ingi Valsson, Ólafsfirðingurinn Kristján Uni Óskarsson, Víkingurinn Guðrún Jóna Arinbjarnardóttir, Akureyringurinn Dagný Linda Kristjánsdóttir og Sindri Már Pálsson úr skíðadeild Breiðabliks. Tveir skipa landsliðið í göngu, Ísfirðingurinn Jakob Einar Jakobsson og Ólafsfirðingurinn Elsa Guðrún Jónsdóttir. Íslenska skíðafólkið æfir af krafti fyrir Ólympíuleikana í Tórínó í febrúar á næsta ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×