Sport

Blak: Nýr framkvæmdastjóri ráðinn

Blaksamband Íslands réð í dag nýjan framkvæmdarstjóra, Sævar Má Guðmundsson. Sævar sem hefur verið dómari í blakinu hefur áður leikið með KA og Þrótti. Sævar hóf störf formlega 1. ágúst sl. og tekur við starfinu af Páli Leó Jónssyni. Hann er 26 ára að aldri er með BA-gráðu í félagsfræði. Hann stundar nú MA-nám í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands og hyggst ljúka því samhliða starfi sínu hjá sambandinu í vetur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×