Erlent

Lýsa vantrausti á Schröder 1. júlí

Vantrausti verður lýst á Gerhard Schröder, kanslara Þýskalands, þann 1. júlí næstkomandi. Það er fyrsta skrefið í átt að þingkosningum í haust en allt bendir til þess að Schröder tapi þeim. Nokkuð er síðan að Schröder lýsti vilja sínum að flýta þingkosningum um ár en það var fyrst í gær sem lausn fannst á því hvernig það væri hægt. Þýska stjórnarskráin gerir ekki ráð fyrir því að þingið sé leyst upp og því var ekki ljóst hvernig hægt væri að efna til kosninga snemma. Til deilna kom þegar Horst Köhler, forseti Þýskalands, tók undir með íhaldsmönnum sem sögðu einu leiðina þá að Schröder segði af sér, en það hann tók fyrir. Þýskir fjölmiðlar geta sér þó til um það að Schröder íhugi jafnvel brotthvarf af pólitískum vettvangi fyrir kosningar. Niðurstaðan varð sú að Schröder sækist eftir traustsyfirlýsingu í þinginu 1. júlí og talið er víst að hún verði felld enda vill Schröder það. Samkvæmt stjórnarskránni verður hann að gera grein fyrir ástæðu þess að hann sækist eftir stuðningi þingsins en hann ætlar ekki að gefa þá ástæðu upp fyrr en daginn sem atkvæðagreiðslan fer fram. Þó að nokkuð sé í þingkosningarnar er ástandið ekki beisið hjá Schröder og félögum í Jafnaðarmannaflokknum, SPD. Samkvæmt könnunum eru kristilegir demókratar í CDU, með formanninn Angelu Merkel í fremstu víglínu, í mikilli sókn. Jafnaðarmenn njóta að sama skapi lítils fylgis og hafa þokast til vinstri í málflutningi sínum í von um stuðning frá gamla flokkskjarnanum. En nú er líka sótt að SPD frá vinstri. Fyrrverandi formaður flokksins og harðasti vinstrimaðurinn þar, Oskar Lafontaine, hefur tekið saman við leyfar gamla austurþýska kommúnistaflokksins, PDS. Þar er gömul kempa og vinsæl, Gregor Gysi, enn á ný komin á kreik og er búist við því að þeir Gysi og Lafontaine sæki fylgi sitt ekki síst á vinstri væng SPD. Það er því ljóst að það verður mjög á brattann að sækja fyrir Schröder á næstu mánuðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×