Erlent

Varnarsigur Verkamannaflokksins

Þótt Verkamannaflokkurinn hafi haldið velli í bresku þingkosningunum í fyrradag þá er ljóst að þingmeirihlutinn má ekki naumari vera. Óvæntustu tíðindi gærdagsins voru þó afsögn Michaels Howard, leiðtoga íhaldsmanna. Segja má að úrslit kosninganna á fimmtudaginn hafi verið skárri en leiðtogar stóru flokkanna óttuðust en verri en þeir vonuðust til. Verkamannaflokkurinn fékk 355 þingsæti, íhaldsmenn 197, frjálslyndir demókratar 62 og aðrir flokkar deildu með sér 28 þingsætum. 61 prósent kjósenda mætti á kjörstað sem er örlitlu betri kjörsókn en í kosningunum 2001. Sigur Verkamannaflokksins er sögulegur í að minnsta kosti tvennum skilningi. Annars vegar hefur flokknum aldrei áður tekist að halda meirihluta sínum í þrennum kosningum í röð. Hins vegar hefur engin ríkisstjórn frá upphafi þingræðis í landinu haft jafn lítinn hluta kjósenda á bak við sig. Ef litið er til allra kosningabærra manna þá kemur í ljós að aðeins 22 prósent þeirra styðja ríkisstjórn Verkamannaflokksins. "Ég hef hlustað og lært," sagði Tony Blair, leiðtogi Verkamannaflokksins, þegar hann ávarpaði fréttamenn fyrir utan Downing-stræti 10 í gær. "Og ég held að ég hafi mjög góða hugmynd um hvers breska þjóðin væntir af ríkisstjórninni á þessu kjörtímabili." Með aðeins sjötíu sæta þingmeirihluta er ljóst að mun erfiðara verður fyrir Blair að koma umdeildum málum í gegnum þingið. Niðurstöður kosninganna auka jafnframt líkurnar á að Blair sitji aðeins hluta kjörtímabilsins en síðan taki Gordon Brown við stjórnartaumunum. Þrátt fyrir að hafa aukið þingsætafjölda íhaldsmanna um 36 boðaði Michael Howard, leiðtogi þeirra, óvænt afsögn sína í gær. Hann sagði ekki hvenær hann léti af völdum, aðeins að það yrði fyrr en síðar. Frjálslyndir demókratar juku sömuleiðis fylgi sitt umtalsvert og geta ágætlega við unað. Charles Kennedy, leiðtogi frjálslyndra, sagði í gær að úrslitin sýndu að tveggja flokka kerfið væri liðið undir lok í Bretlandi. Andstaða þeirra við Íraksstríðið telst þeim eflaust til tekna, rétt eins og George Galloway, fyrrum þingmanni Verkamannaflokksins, sem bauð sig fram gegn sínum fyrri félögum og vann. Af öðrum frambjóðendum má nefna Gerry Adams, leiðtoga Sinn Fein, en hann hlaut yfirburðakosningu í kjördæmi sínu í Vestur-Belfast á Norður-Írlandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×