Kvöld í Hveró - KK og Ellen 4. maí 2005 00:01
Systkynin KK og Ellen efna til tónleika í Hveragerðiskirkju föstudagskvöldið 6. maí en tónleikar þeirra eru liður í konsertröðinni Kvöld í Hveró. Jón Gunnar Þ´roarinsson hitar upp fyrir KK og Ellen. Þau systkin þau hafa snortið hug og hjörtu þeirra sem á þau hafa hlýtt. Með einlægri framkomu og mikilli tilfinningu í söng og tónlistarflutningi hafa þau áunnið sér hylli og vinsældir þjóðarinnar allrar. Ellen Kristjánsdóttir hefur gefið út tvær sólóplötur, tvær með Kombóinu og þrjár með Borgardætrum. Nýjasta plata hennar, Sálmar, var söluhæst á árinu 2004 og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem plata ársins. KK (Kristján Kristjánsson) hefur sent frá sér sjö einherjaplötur, en einnig starfað með fjölda annara listamanna. KK hefur samið tónlist fyrir leikhús og kvikmyndir, honum hefur einnig hlotnast margvísleg verðlaun bæði fyrir lagasmíðar og hljóðfæraleik. Jón Gunnar Þórarinsson hitar upp. Yfirlýst markmið Kvölds í Hveró er að auka fjölbreytni í menningu á svæðinu, opna augu almennings fyrir þeim möguleika að íslensk popptónlist eigi ekki síður heima í kirkju en klassíkin og gefa ungu og hæfileikaríku tónlistarfólki af Suðurlandi tækifæri til að að hita upp fyrir þá listamenn sem fram koma. Hljómburður í Hveragerðiskirkju þykir einstaklega góður. Aðstandendur Kvölds í Hveró er Norsk-Íslenska Skjallbandalagið Inc. sem í eru Ásgerður Eyþórsdóttir og Monica Haug. Dagskrá Kvölds í Hveró er svohljóðandi: 6. maí - KK og Ellen. Jón Gunnar Þórarins hitar upp 20. maí - Eyfi og Stefán. Prímadonnur frá Selfossi hita upp 3. júní - Hljómsveitin Hjálmar. Helgi Valur Ásgeirsson hitar upp Miðaverð á tónleikana er 1.500 krónur. Frekari upplýsingar má finna á kvoldihvero.go.is, tonlist.is og í síma 692 8531. Sala á miðum fer fram í Hljóðhúsinu á Selfossi og við kirkjudyr. Hótel Örk í Hveragerði býður einnig upp á Nótt í Hveró í tengslum við tónleikana. Boðið er upp á gistingu með morgunverði ásamt tónleikamiða á aðeins 4900 kr. fyrir mann í tvíbýli. Pantanasími er 483 4700. Tilboðið gildir þá daga sem tónleikar eru haldnir. Allir tónleikarnir fara fram á föstudagskvöldum kl 21:00 í Hveragerðiskirkju nema tónleikar Stefáns og Eyfa, sem haldnir verða í Selfosskirkju, í samvinnu við menningarhátíðina Vor í Árborg sem fram fer 20. til 22. maí n.k. Skipulagning hennar stendur nú yfir.
Innlent Menning Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira