Þögn ofbeldis rofin á Arnarhóli 9. apríl 2005 00:01
Þögnin í kringum ofbeldi var rofin á Arnarhóli í dag þegar fjöldi fólks hengdi upp boli til að sýna í verki að það þyrði að tala um ofbeldi sem það hefði orðið fyrir. Það voru samtökin Styrkur, úr hlekkjum til frelsis, og verkefnið Blátt áfram sem skipulögðu athöfnina á Arnarhóli í dag en hún var stutt af Stígamótum, Samtökum um kvennaathvarf, Kjarki, Femínistum, Unifem og Íslandsdeild Amnesty International. Tilgangurinn var að hvetja fórnarlömb ofbeldis til að segja frá ofbeldi sem þeir hafa orðið fyrir. Og vitnisburður fórnarlamba ofbeldis er hrikalegur eins og sjá mátti á áletrunum bolanna í dag. Svava Björnsdóttir, verkefnastjóri Blátt áfram, segir að með átakinu sé verið að gefa þeim sem sætt hafi ofbeldi tækifæri til að rjúfa þögnina, sama hvernig mynd ofbeldis sé um að ræða. Hún kveðst vona að þetta muni hætta að vera feimnismál. Elfa María Geirsdóttir var ein þeirra sem hengdi upp bol og rauf þögnina. Hún segir þetta hjálpa, m.a. því ofbeldið og fórnarlömbin verði sýnilegri með athöfninni en ekki aðeins prósentutölur. „Ef ég hefði heyrt talað um ofbeldi þegar ég var krakki þá hefði ég kannski uppgötvað, „já, það er verið að tala um mig“, en ég heyrði það aldrei - og vissi því aldrei að þetta væri rangt,“ segir Elfa.
Fréttir Innlent Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Sjá meira