Sport

Oliver Kahn vill ná þrennunni

Oliver Kahn, landsliðsmarkvörður Þjóðverja, er sannfærður um að lið sitt, Bayern Munchen, muni vinna þrjá titla á tímabilinu. Á hann þar við þýska meistaratitilinn, bikarinn og Meistaradeild Evrópu. "Lið á borð við Chelsea, sem er með stór nöfn innan sinna raða og aðlaðandi fótbolta geta alveg dottið úr keppninni eins og Arsenal, Barcelona og Real Madrid," sagði Kahn en Chelsea er einmitt næsti andstæðingur liðsins í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. "Það væri náttúrulega toppurinn að ná þremur bikurum." Bayern Munchen er í efsta sæti þýsku deildarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×