Óvenjuleg hlýindi um páskana 28. mars 2005 00:01
Óvenjuleg hlýindi hafa verið um þessa páska og mælst hæstur hiti í mars frá árinu 1965. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, hefur rýnt í hitatölur og segir að páskarnir séu snemma í ár og því þurfi að skoða ofan í kjölinn hvort ekki hafi orðið hlýrra á páskum. Það sé ekki ólíklegt þegar páskarnir hafi verið seint, um miðjan apríl þegar farið sé að vora. Á laugardaginn fyrir páska mældist hitinn yfir 15 stig á Norðurlandi, bæði á Dalvík og á Sauðanesvita við Siglufjörð. Á páskadag urðu hlýindin mest í Borgarfirði, þar varð hitinn hæstur 17,3 stig á Húsafelli. Er það hæsti hiti sem mælst hefur í marsmánuði í Borgarfirði. Áður hafði hitinn orðið mestur 15,2 stig í Síðumúla í Hvítársíðu 31. mars 1965. Þann sama dag fór hitinn í 17,9 stig á Sámsstöðum í Fljótshlíð, sem er hæsti mældi hiti marsmánaðar hér á landi, a.m.k. frá árinu 1923. Á Norðurlandi var álíka hlýtt nú og fyrir tveimur árum, en 27. mars 1948 var heldur hlýrra norðanlands. Einar telur að skíðatíðin hljóti að vera á enda eða því sem næst. Hann segir að miðað við útlitið næstu daga verði lítið lát á blíðviðrinu. Vindar séu suðlægir og suðaustlægir og tiltölulega hlýtt verði fram eftir vikunni. Vindurinn gæti þó snúsit í norðaustanátt í skamman tíma, um og eftir næstu helgi, en það séu engin óyggjandi merki um það enn þá. Einar segist sjálfur ætla að ganga frá sínum skíðum í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Sjá meira