Skógarþrösturinn kominn 20. mars 2005 00:01
Fyrstu farfuglarnir hafa verið að koma til landsins síðustu daga og nú í morgun sást fyrsti skógarþrösturinn við Fuglaathugunarstöð Suðausturlands. Á Suðausturlandi hafa menn orðið varir við nokkur hundruð tjalda í síðustu viku og heldur tjaldurinn sig aðallega á leirunum í Hornafirði og Skarðsfirði. Þá er sílamáfur farinn að sjást, meðal annars á Reykjavíkurtjörn, og álftirnar eru komnar á Suðausturland, en þótt álftin sé sums staðar staðbundin þá fer hún til að mynda alveg frá Suðausturlandi á haustin og kemur aftur á vorin, að sögn Brynjúlfs Brynjólfssonar, fuglaáhugamanns á Hornafirði. Á næstu dögum er von á farfuglunum sem vekja með okkur þá tilfinningu að vorið sé komið, t.d. lóunni. Brynjúlfur segir að gera megi ráð fyrir því að heiðlóan komi næstu daga og að fyrstu fuglarnir fari að sjást einhver staðar á Suðurlandinu. Í apríl komi svo fleiri og þá í stærri hópum. Skógarþrestir komi til að mynda þúsundum saman og þeir fljúgi lágt með landinu og alveg yfir það, en þetta gerist mjög hratt. Brynjúlfur segir að eftir páska gerist hlutirnir svo hratt. Þá komi fyrstu þúfutittlingarnir og í byrjun apríl detta farfuglarnir svo inn einn af öðrum, gæsir, endur, álftir, vaðfuglar og spörfuglar. Fyrstu fuglarnir sjáist yfirleitt á svipuðum tíma og þetta sé því í föstum skorðum. 23. eða 24. apríl komi svo krían. Brynjúlfur Brynjólfsson segir að fyrsti skógarþrösturinn hafi sést í morgun við Fuglaathugunarstöð Suðausturlands, en hún var stofnuð í síðustu viku á Hornafirði og er öllum opin.
Fréttir Innlent Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Sjá meira