Fjárhættuspil á íslenskri vefsíðu 17. mars 2005 00:01
Vefsíða á íslensku hefur verið opnuð þar sem hægt er að spila fjárhættuspil upp á stórar upphæðir. Að hafa atvinnu af fjárhættuspili varðar við íslensk lög en eigendur síðunnar telja hana ekki ólöglega þar sem fyrirtækið á bak við hana er breskt. Hingað til hefur verið auðvelt að nálgast fjárhættuspil sem bönnuð eru hér á landi, á netinu á erlendum vefsíðum. Nú er í fyrsta sinn komin upp vefsíða á íslensku sem býður upp á póker, veðmál og fleiri fjárhættuspil: Betsson.com. Og þarna er um alvöru fjárhættuspil að ræða þar sem oft er spilað upp á mjög háar fjárhæðir. Fyrirtækið er breskt og því telja eigendur síðuna hvorki ólöglega né leyfisskylda hér á landi. Vefsíðurnar eru á tíu tungumálum. Fyrirtækið sjálft tekur 2% af hverri færslu sem fer í gegnum kerfið. Meðal annars er hægt að veðja á ýmiskonar íþróttaleiki og í framtíðinni séríslensk fyrirbæri, eins og hver vinni formannsslaginn í Samfylkingunni svo dæmi séu tekin. Að gera fjárhættuspil og veðmál að atvinnu varðar við hegningarlög hér á landi þó ýmsir, eins og Íslenskar getraunir, hafi sérstakt leyfi til að standa fyrir veðmálum. Ólafur V. Sigurvinsson, talsmaður Betsson.com, segir Rauða krossinn og SÁÁ einnig þar á meðal - og hinir síðarnefndu taki svo fólk í meðferð þegar það er orðið spilasjúkt. Dómsmálaráðuneytið gaf fréttastofu ekki upplýsingar um það í dag hvort þessi starfsemi hefði verið, eða kæmi, þar til skoðunar.
Fréttir Innlent Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Fleiri fréttir Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Sjá meira