Sjúkrabílnum snúið við 17. mars 2005 00:01
Bróðir ungs karlmanns sem lést af ofneyslu lyfja telur að Neyðarlínan hafi brugðist skyldu sinni þegar hætt var við að senda sjúkrabíl eftir honum, eftir að hann hafði afþakkað aðstoð. Hann lést nokkrum klukkustundum síðar. Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir ekki hægt að flytja menn með sjúkrabíl gegn vilja þeirra. Hann segir að farið verði yfir málið og skoðað hvort ástæða sé til að breyta vinnureglum. Óskar Þór Gunnlaugsson lést 20. febrúar af ofneyslu lyfja, 28 ára gamall. Hann hafði sprautað sig með verkjalyfinu contalgini. Félagi hans hringdi í Neyðarlínuna og tilkynnti um að Óskar hefði farið í dá. Sjúkrabíll var sendur á staðinn og á leiðinni var hringt á staðinn þar sem Óskar var. Þar svaraði vinkona hans sem sagði hann með rænu og kom hann síðan sjálfur í símann og sagðist afþakka sjúkrabíl, sem þar með var snúið við. Nokkrum klukkustundum síðar var Óskar Þór Gunnlaugsson látinn. Bróðir Óskars, Hákon Hreiðarsson, telur að ekki hafi verið rétt að verki staðið. Í raun hafi starfsfólk Neyðarlínunnar gert allt sem það hafi þurft að gera en hann telur augljóst að það hafi getað gert meira því sérfræðingar voru ekki látnir kanna ástand Óskars. „Þau létu stúlku úti í bæ meta mann sem var að taka contalgin,“ segir Hákon. Hákon telur að sjúkrabíllinn hefði átt að fara á leiðarenda og ganga úr skugga um ástand bróður hans, þar sem vitað var hvaða lyf hann notaði og að bíllinn hafi á skammt eftir á staðinn. Hann segist hafa fengið þær skýringar að sjúkraflutningamenn geti ekki neytt fólk til að fara með sér og að oft sé löngum tíma eytt í að reyna að telja því hughvarf, jafnvel upp í tvær klukkustundir. „Bróðir minn fékk hins vegar ekki mínútu,“ segir Hákon. Hákon segir fjölskylduna ekki hafa ákveðið frekari skref. Sjálfum þyki sér nóg að vekja athygli á þessu þannig svona lagað hendi ekki aftur. „Það er náttúrlega ekkert sem mun bæta skaða Óskars en ef það verður til þess að þeir taki sig saman í þessu, og bjargi einhverjum öðrum í staðinn, þá er alla vega hálfur sigur unninn,“ segir Hákon. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri ítrekar að ekki sé hægt að neyða fólk til að fara með sjúkrabílum. Reynt sé að vetia eins góða og örugga þjónustu og hægt er. Hann segir að farið verið yfir málin í framhaldinu og skoðað hvort ástæða sé til að breyta vinnureglum.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira