Vill fullvissu fyrir frelsi 17. mars 2005 00:01
Stuðningsmenn skákmeistarans Bobby Fischers áttu fund með Allsherjarnefnd Alþingis í gærmorgun. Þeir lögðu fram upplýsingar um atburðarásina í Japan, viðræður sínar við japanska stjórnmála- og embættismenn og möguleika Fischers á að losna frá Japan. Stuðningsmenn Fischers telja sig hafa sterkar vísbendingar um að Fischer verði sleppt lausum hafi hann íslenskt ríkisfang og honum leyft að fara til Íslands. "Þessar upplýsingar eru ekki staðfestar af stjórnvöldum heldur er þetta bara haft eftir samtölum við menn. Nú þurfum við að leggja mat á þessi gögn. Það er spurning hvaða áhrif þau hafa á framvindu málsins," segir Bjarni Benediktsson, formaður Allsherjarnefndar, og vill ekkert segja um það hvenær málefni Fischers verði næst tekið fyrir eða líkurnar á því að Fischer fái íslenskt ríkisfang. "Ég get sagt fyrir mitt leyti að það þarf að vera á hreinu að þessar upplýsingar standist ef þær eiga að móta afstöðu einstakra manna til þess hvað eigi að gera í þessu máli. Maður þarf að hafa fullvissu fyrir því að þessar upplýsingar séu réttar," segir hann. Ákveði allsherjarnefnd að veita Fischer ríkisborgararétt þá segir Bjarni að afgreiðsla málsins taki aðeins örfáa daga. Málið þurfi þá ekki að fara aftur til nefndarinnar á milli fyrstu og annarrar umræðu en það verði samt að fara í hefðbundnar þrjár umræður á þinginu. Hann segir ekkert fordæmi fyrir hendi. Fischer er nú laus úr einangrun í innflytjendabúðunum í Japan. Hann hringdi til íslenskra vina sinna í gær og sagði að síðustu dagar hefðu verið algjör martröð.
Fréttir Innlent Mest lesið Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen Innlent Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Innlent Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Innlent „Raunhæfur möguleiki“ að hitamet falli á morgun Veður Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Erlent „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Innlent Fleiri fréttir Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi af nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Sjá meira