Loðnuvertíðinni lokið 16. mars 2005 00:01
Loðnuvertíðinni lauk í nótt þrátt fyrir að rúmlega 180 þúsund tonn væru eftir af kvótanum. Það er þó ekki svo að sjómenn hafi ekki nennt þessu lengur, heldur kom í ljós um helgina að hrygningu var að ljúka en loðnan drepst að henni lokinni og fellur til botns. Síðustu skipin héldu af miðunum fyrir vestan land í nótt, áleiðis til heimahafna, ýmist tóm eða með einhverja slatta. Heildaraflinn er u.þ.b. 620 þúsund tonn en kvótinn var 803 þúsund tonn þannig að 183 þúsund tonn falla niður áveidd af vertíðinni. Þetta er heldur undir meðaltali síðustu 10-15 ára en telst þó alls ekki léleg vertíð þegar verðmætið af henni er skoðað því útflutningsverðmæti loðnuafurða af þessari vertíð er líklega um níu milljarðar króna. Þar munar mikið um hversu mikið var fryst til manneldis að þessu sinni en mun hærra verð fæst fyrir þær afurðir en fyrir loðnu sem fer í bræðslu. Loðnan hegðaði sér mjög óvenjulega eftir að hún gekk suður fyrir landið í vetur og þétti hún sig aldrei almennilega upp á grunninum eins og venjulega. Óvænt vestanganga kom þá til skjalanna og lífgaði upp á lokasprettinn. Botninn datt svo úr veiðunum um helgina og gáfu sjómenn endanlega upp vonina um frekari afla í nótt og héldu heim á leið.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira